Hafþór Þórarinsson

Customer Success Engineer hjá 50skills

Sjálfvirknivæðing ferla: verkferlar með gervigreind þar sem hún skilar raunverulegu virði.

Bakgrunnur í forritun. Tónlistarmaður í frístundum.

Svarthvít mynd af Hafþóri brosandi með krosslagðar hendur, í dökkum jakka

Um mig

Ég heiti Hafþór og hef gaman af því að einfalda vinnuna fyrir fólkið sem sinnir henni. Á sextán árum hjá Flugfélagi Íslands og Icelandair fór ég frá innritunarborðinu á Egilsstaðaflugvelli yfir í vefmál, hugbúnaðarþróun og tækniteymisstjórn, og sjálfvirknivæddi ferla og tengdi saman kerfi á leiðinni.

Frá því í ágúst 2026 hef ég starfað sem Customer Success Engineer hjá 50skills, HR-sjálfvirknilausninni sem ég vann mikið með hjá Icelandair. Þar hjálpa ég viðskiptavinum að byggja verkferla með gervigreind þar sem hún skilar raunverulegu virði.

Ég er menntaður grunnskólakennari með áherslu á tónlist, leiklist og dans og erlend tungumál. Utan vinnu er ég oftast að búa til tónlist eða í körfubolta.

Ferill

  1. 2026–

    Customer Success Engineer 50skills

    Sjálfvirknivæðing HR-ferla: verkferlar með gervigreind þar sem hún skilar raunverulegu virði.

  2. 2026

    Tech Lead, Employee & Workplace Icelandair

    Fór aftur í hugbúnaðarþróun þegar vöruteymi voru stofnuð hjá Icelandair.

  3. 2022–2025

    Lausnastjóri innri lausna Icelandair

    Tæknilegur eigandi nokkurra aðkeyptra kerfa. Bætti og sjálfvirknivæddi innri ferla með Power Apps og Power Automate, meðal annars samþættingar milli kerfa, og vann mikið að fjöldaráðningum í 50skills Journeys.

  4. 2020–2022

    Forritari, Stafræn þróun Icelandair

    Sérfræðingur í kerfum Flugfélags Íslands við sameininguna við Icelandair. Í vinnuhópnum sem innleiddi Loftbrú, afslátt stjórnvalda af innanlandsflugi, á vef Flugfélags Íslands. Framendaforritun á Maintener-kerfinu í React, sem síðar var endurskrifað í TypeScript, ásamt smá .NET-bakendavinnu.

  5. 2015–2020

    Vefsérfræðingur Flugfélag Íslands

    Þróun og viðhald vefsins, samfélagsmiðlar og verkefnastjórnun með utanaðkomandi vefstofu. Síðar eigandi nokkurra kerfa, þar sem bókunarvél vefsins var stærst. Smíðaði Power App fyrir útgjaldaskráningu sem var tekið upp hjá allri Icelandair-samstæðunni, það fyrsta af mörgum.

  6. 2010–2015

    Innritun, þjónusta og ferðaskrifstofa

    Byrjaði í flugbransanum við innritunarborðið á Egilsstaðaflugvelli og vann síðan við þjónustu og á ferðaskrifstofu.

Menntun

  • Diplóma í forritun, NTV 2019–2021
  • B.Ed. í grunnskólakennarafræðum, Háskóli Íslands 2010–2013
    Tónlist, leiklist og dans, og erlend tungumál
  • Áður: HTML og CSS, upptökur í Pro Tools og ein önn í tölvunarfræði

Tónlist

Ég er sjálflærður gítarleikari, spilaði á hljómborð í nokkur ár og hef gaman af að syngja, meðal annars í kórum. Ég sem lög og hef tekið upp töluvert af eigin tónlist, bæði frumsamin lög og ábreiður.

Hlusta á ReverbNation (opnast í nýjum flipa)

Hafa samband

Best er að ná í mig með tölvupósti eða á LinkedIn.